jæja fólk er eitthvað farið
að kvarta útaf bloggleysi..hmm..mér finnst bara ekkert gaman
að blogga lengur þar sem 200 manns skoða síðuna og ég veit
ekki shitt hverjir þetta eru? ekki eru þettabara vinir mínir
því þeir fara kannski einu sinni á dag..og ekki eru þeir
200
hehe neinei ég blogga samt..
Mín komin heim frá Barcelona..þótt
mig langaði það nú ekkert sérstaklega..28 stiga hiti, stundum
skýjað stundum heitt en mikil gola..næs indeed. Þessi borg er
fullkomin. Ég nenni aldrei aftur á svona týpískan spánarstað þar
sem eina sem hægt er að gera er að liggja í sólbaði og kannski
skoða þýska skemmtistaði..þeir tímar eru ekki lengur til. Barcelona
has it all. Fallegir staðir til að skoða..milljón staðir..við
skoðuðum ekki einu sinni alla!! samt skoðuðum við mikið skal ég
segja ykkur..mjög gott að versla þarna og mjög ódýrt..við reyndar
komum akkúrat þegar sumarföt voru á útsölu þannig ekki mikið um
vetrarföt, en það er einmitt það sem maður þarf hér á landi ísins.
En við náðum að versla slatta samt sem áður. Svo var ekkert mál að
kíkja á ótrúlega fallega strönd ef manni langaði í sólbað. Góður
matur og skemmtileg borg. Við skoðuðum Goudí kirkjuna eða það sem
hún heitir Sagrida Familia...þessi kirkja er sjuklega vönduð og
flott..og hún er ekki nærrum því tilbúin, efast um að hún verði
tilbúin á meðan ég lifi. Hún er bara byggð ef fólk gefur frjáls
framlög og frá aðgangseyrinum. Og þegar hún verður tilbúin þá á
hæsti turninn eftir að vera 170 metra hár..sjúkt. Svo fórum við í
Goudí garðinn en hann er með útsýni yfir alla Barcelona..ekkert smá
rómó og flottur. Svo skoðuðum við Born hverfið í ræmur og margt
fleira sem varð á okkur vegi. Ég vildi ekki kíkja inná Camp Nou
heldur ætla ég að bíða þangað til ég fer á leik sem verður einhvern
tímann! Ferðin okkar út byrjaði líka ekkert smá vel..við mættum
mjög snemma útá flugvöll því Íris vinkona var líka að fara út og
við fengum far..og þar sem við komum svona snemma þá fengum við
Saga-Class sæti sem var heví næs sérstaklega í 4 tíma flugi..fór
vel um mann þar.
Stebbi átti afmæli úti þannig að
við fórum á Spænska torgið en þar var bara höll, hef aldrei séð
jafn fallegt á ævinni minni!! svo voru huge gosbrunnar sem dönsuðu
í takt við óperu tónlist..svo voru fullt af gosbrunnum upp alla
brekkuna upp að höllinni..svo fallegt..þetta var ekkert smá næs
ferð..hótelið okkar fullkomnaði líka allt
saman..morgunverðarhlaðborð á hverjum morgni, uppá þaki var bar á
kvöldin og það var svona risa bygging á móti hótelinu okkar og á
miðnætti þá kviknuðu blá og rauð ljós og það var ekkert smá rómó og
kósí að kúra saman á bekk og horfa yfir alla Barcelona..herbergið
okkar var líka svo flott og þægilegt að stundum nenntum við bara
ekkert út..enda var horft eitthvað á CNN í flatskjánum..við vorum
með 100 stöðvar en þar sem allt er þýtt yfir á spænsku því
miður..þá var ekki mikið annað í boði hehe..óþolandi að allt sé
þýtt..kostar ábyggilega milljón að gera þetta og þetta er líka bara
fáranlegt..hvað læra þau ekki ensku í skólunum?? en anywho við
misstum ekki af neinu í heiminum..komumst að því að CNN er besta
stöðin í heiminum..við vissum allt hvort sem það var um flóðin í
Bretlandi, Líberísku hjúkkunar, Lindsay Lohan og ölvunaraksturinn,
Herrington golfari, forsetakappræðurnar..CNN hefur þetta allt
heheh
Hér eru nokkrar preview myndir annars er ég búin
að setja fullt inná:
http://www.sunnadis.myphotoalbum.com/view_album.php?set_albumName=album54
bara svo þið vitið þá getið þið
kommentað á myndir tíhí
og líka hér á bloggið..
Ég
var ágætlega sátt með rúmið hehe
Við
hjá kastalanum og gosbrunnunum..afmæli Stebba
líka:*
Stebbi uppá þaki á hótelinu okkar..stóra
byggingin í bakgrunn og líka Barcelona
Þarna
er hún á kvöldi til..ómótstæðileg
Þarna
erum við í Goudí garðinum..ótrúlega fallegt!!!
Þarna
er kirkjan endalausa!! fáranlega vönduð eins og þið
sjáið..
Inní
kirkjunni..verið að byggja.. eða skreyta hana væri betur
orðað.
Ég að
liggja í sólbaði uppá þaki..fullkomið hótel frábært
útsýni!!
Ég að
labba í eina af mörgum hliðargötum í Born hverfinu..
Stebbi með einhverjum Breta að klípa í brjóst á
götulistamanni á Römblunni hehe
Það
var mikil ást í þessari ferð:*
við í
goudí garðinum..mikil love..
Endilega farið til Barcelona ef
þið hafið ekki farið áður!! Mæli eindregið með henni
Annars er framundan:
- Eyjar á laugardaginn..mitt fyrsta
skiptið og ég er mjög spennt..samt ekki alveg fyrir veðrinu..en
þetta er ekkert nýtt maður er búin að þekkja þetta í næstum 21
ár..samt virðist fólk alltaf jafn hissa hehe..
- Svo er ég komin með vinnu á
Hjallastefnu leikskólanum Laufásborg í 101..byrja strax eftir
Eyjar..ég hlakka mikið til, þar sem mér finnst þessi
jafnréttisstefna yndisleg og mig langar að læra meira um
hana..
- Svo byrja ég í skólanum 22.ágúst
og ég get ekki beðið að byrja læra aftur..þetta ár var mjög
skemmtilegt..lærði mikið á skóla
lífsins..en bóklegi skólann elska ég líka.
- Svo byrja ég í september í
félagsmiðstöðinni Sigyn í Rimaskóla..verður spennandi að kynnast
nýjum unglingum og vinna með nýju starfsfólki, ég á eftir að sakna
Magga og Steina mikið..við skemmtum okkur ótrúlega vel í vetur og
það verður erfitt að fylla þeirra skó.
- Svo ætla ég að reyna heimsækja
Sigrúnu mína í Boston í október..sakna hennar óendanlega mikið og
ég get ekki beðið eftir að sjá rúsínuna mína..líf mitt saknar
birtunnar hennar.